BSc í Stærðfræði
Þekking og færni í stærðfræði og raungreinum er undirstaða efnahagslegra framfara og samkeppnishæfni þjóða. Stærðfræðimenntun er ekki bara góður undirbúningur fyrir vinnu á afmörkuðum sviðum. Hún er einnig framúrskarandi þjálfun í að takast á við margs konar viðfangsefni sem krefjast nýsköpunar, og þar sem þörf er á hæfileikum til greiningar og lausnar flókinna verkefna með skipulögðum hætti. Síðast en ekki síst er stærðfræðin líka heillandi í sjálfri sér. Hún hefur verið eitt helsta djásn mannsandans í þúsundir ára, og er sífersk uppspretta spennandi viðfangsefna.
Tölvunarfræðideild HR er með öflugt nám í stærðfræði, sem er traust undirstaða fyrir ýmis störf, sem og fyrir rannsóknir í stærðfræði og á skyldum sviðum. Með stærðfræðinni er hægt að velja námskeið úr ýmsum deildum skólans. Þannig er til dæmis hægt að taka mest allt valið í viðskiptagreinum, og mikla fjármálastærðfræði innan stærðfræðinnar, fyrir þá sem hafa áhuga á viðskiptum. Einnig er hægt að taka mikla tölvunarfræði í vali, og velja námskeið tengd tölvunarfræði í stærðfræðinni.
Ekki verður tekið við umsóknum inn í námið haustið 2010.
"Innihaldið í BSc-náminu okkar er að mestu hefðbundið. Við leggjum hinsvegar mikla áherslu á að gera nemendur okkar að sjálfstæðum stærðfræðingum, þ.e.a.s. að þjálfa þá í að leysa erfið stærðfræðileg verkefni á eigin spýtur. Við gerum miklar kröfur til nemenda, en sjáum til þess að sérhver nemandi fái þá aðstoð sem þarf til að standa undir þeim"
Dr. Einar Steingrímsson, prófessor í stærðfræði við Tölvunarfræðideild HR


