BS í tölvunarfræði
Tölvunarfræðideild er í virku alþjóðlegu samstarfi, bæði í kennslu og rannsóknum. Jafnframt vinnur deildin náið með atvinnulífinu, t.d. í formi lokaverkefna. Útskrifaðir nemendur í tölvunarfræði hafa því mjög góðan undirbúning hvort heldur sem þeir fara beint út á vinnumarkaðinn eða huga að framhaldsnámi hérlendis eða erlendis.
Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum, enda skarast tölvunarfræði við margar greinar, s.s. stærðfræði, sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði, viðskiptafræði o.fl. Tölvunarfræðingar vinna því gjarnan með fólki sem hefur aðra grein að sérsviði.
Mikil eftirspurn er eftir tölvunarfræðimenntuðu fólki. Þekking og kunnátta í upplýsingatækni og stærðfræði er undirstaða efnahagslegra framfara og samkeppnishæfni þjóða. Markmið deildarinnar er bjóða nemendum upp á traust fagnám á þessum sviðum.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Við val á umsækjendum verður einnig horft til starfsreynslu eða frekara náms. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt.
Starfsnám í Bandaríkjunum
Nemendur í BSc í tölvunarfræði hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólan í Maryland (Frauenhofer Center for Experimental Software Engineering og fengið vinnuna metna til eininga. Við Fraenhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.
Nemendur fá borguð laun meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

