BSc í hugbúnaðarverkfræði

CCP mynd nemendurHugbúnaðarkerfi eru á meðal stærstu og tæknilega flóknustu kerfa sem smíðuð eru, sér í lagi kerfi þar sem gerðar eru miklar kröfur um áreiðanleika. Markmið náms í hugbúnaðarverkfræði er að mennta lykilstarfsmenn sem koma til með að beita verkfræðilegum aðferðum við hönnun og smíði slíkra kerfa.

Hugbúnaðarverkfræðinám gefur nemendum bæði sterkan verkfræðilegan grunn og hagnýta þjálfun í aðferðum og vinnubrögðum. Grunnurinn byggist á menntun í tölvunarfræði, stærðfræði og undirstöðugreinum verkfræði. Hagnýt þjálfun byggist á nýjustu aðferðum hugbúnaðarfræði, verkefnastjórnunar og gæðastýringar, ásamt raunhæfum hugbúnaðarverkefnum sem unnin eru í samvinnu við atvinnulífið.

Mikil eftirspurn er eftir verkfræðimenntuðu fólki og sérstaklega á þeim sviðum er tengjast upplýsinga- og hátækniiðnaði framtíðarinnar.

Nám í hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík er góður undirbúningur fyrir þátttöku í atvinnulífinu og traust undirstaða fyrir framhaldsnám hérlendis og erlendis.


Inntökuskilyrði

Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Gerðar eru kröfur um að nemendur hafi haldgóða þekkingu á stærð­fræði, raungreinum, íslensku og ensku. Æskilegur undirbúningur fyrir nám í hugbúnaðarverkfræði er að hafa lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlis­fræði. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt.


Starfsnám í Bandaríkjunum

Uni of MarylandNemendur í BSc í hugbúnaðarverkfræði hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólan í Maryland (Frauenhofer Center for Experimental Software Engineering og fengið vinnuna metna til eininga. Við Fraenhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.

Nemendur fá borguð laun meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

 

 




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica