Grunnnám í tölvunarfræðideild
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður upp á þriggja ára (180 ECTS eininga) grunnnám til BS-gráðu í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði og stærðfræði, en ekki verða teknir inn nýnemar í stærðfræði haustið 2010. Að auki er boðið upp á nám til diplómaprófs í kerfisfræði, í staðarnámi, fjarnámi eða háskólanámi með vinnu (HMV). Námið fer fram á íslensku og ensku.
Veturinn 2010-2011 eru eftirfarandi námsleiðir í boði:
Kerfisfræði
BS nám í tölvunarfræði
BS nám í hugbúnaðarverkfræði
Aperio – Sérsniðið nám fyrir einstaklinga með sérstaka hæfileika
