Verkfræði BSc

Sterk fræðileg undirstaða og sérhæfð fagþekking

Tækni- og verkfræðideild HR býður nám í verkfræði til BSc-gráðu (180 ECTS) í fimm greinum:

IMG_3105Fjármálaverkfræði

Heilbrigðisverkfræði

Hátækniverkfræði

Rekstrarverkfræði

Vélaverkfræði

Að auki er boðið upp á nám í hugbúnaðarverkfræði í samvinnu við tölvunarfræðideild. Eftir 3 ára grunnnám til BSc gráðu bæta nemendur við sig 2 ára námi til MSc gráðu til að öðlast full starfsréttindi sem verkfræðingar. Atvinnumöguleikar verkfræðinga eru góðir og mikil eftirspurn eftir fólki með verkfræðimenntun, sem og aðra tæknimenntun, bæði hér á landi og erlendis.

Námið byggir á því að veita nemendum sterka fræðilega undirstöðu í bland við sérhæfða fagþekkingu. Sérstaða verkfræðinga er mikil greiningarhæfni og þekking til að fást við krefjandi viðfangsefni, hvort sem þau eru hagnýt eða fræðileg. Við uppbyggingu og högun námsins er gert ráð fyrir þátttöku nemenda í umfangsmiklum verkefnum, sem tengjast rannsóknum sem kennarar deildarinnar vinna að, oft í samstarfi við fyrirtæki eða stofnanir.

Fyrirkomulag BSc náms í verkfræði

Inntökuskilyrði í verkfræði

Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Gerðar eru kröfur um að nemendur hafi haldgóða þekkingu á stærð­fræði, raungreinum, íslensku og ensku. Æskilegur undirbúningur fyrir nám í verkfræði er að hafa lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlis­fræði. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt

Skólagjöld

 

Fylgiskjöl með umsókn í verkfræði:

Námsferill
Starfsferill, etv. meðmæli

Nánari upplýsingar veitir:

Telma Hrönn Númadóttir, verkefnastjóri í verkfræði, telmah@ru.is , s.599 6314


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica