Náms- og framvindureglur BSc náms í tæknifræði

Reglur um inntöku nemenda, prófkröfur, endurtöku prófa, námsframvindu, forsetalista o.fl.

Reglur þessar byggja á almennum náms- og prófareglum Háskólans í Reykjavík sem og reglugerð fyrir Háskólann í Reykjavík.  Að öðru leyti en hér kemur fram er vísað til þeirra reglna.  Vakin er athygli á því að nemendur bera sjálfir ábyrgð á að haga námi sínu í samræmi við þessar reglur.

1. Inntaka nemenda

1.1. Bókleg inntökuskilyrði eru stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Til þess að geta hafið nám í tæknifræði þarf haldgóða þekkingu í stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku. Til leiðbeiningar er æskilegt að miða við að nemendur hafi lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlisfræði.

1.2. Tækni- og verkfræðideild setur viðmiðunarreglur um val á umsækjendum við inntöku í námið.
1.3. Nemendur skulu hafa aflað sér 6 mánaða fagtengdrar starfsreynslu áður en þeir ljúka námi í tæknifræði.  

2. Mat á fyrra námi

2.1. Nemandi sem óskar eftir því að fá fyrra háskólanám sitt metið sækir um það til deildarfulltrúa á þar til gerðu eyðublaði.
2.2. Námskeið sem tekið hefur verið í öðrum háskóla er metið til eininga við Háskólann í Reykjavík og skráð á námsferil sem metið (M) ef um er að ræða sambærilegt námskeið frá viðurkenndum háskóla, enda hafi nemandi staðist lágmarkskröfur viðkomandi háskóla. Til að geta útskrifast úr HR skal þó almennt miða við að nemandi hafi tekið a.m.k. 50% af heildareiningafjölda viðkomandi námsbrautar við HR.
2.3. Mat námskeiða frá öðrum háskólum skal vera í höndum námsmatsnefndar.
2.4. Við mat á fyrra námi gildir almennt að námskeið eldri en 7 ára eru ekki metin.

3. Lágmarkseinkunn og fjöldi eininga á önn

3.1. Til að standast námskeið þarf nemandi að fá einkunn 5,0 eða hærri.
3.2. Nemandi getur sjálfur skráð sig í að hámarki 36 ECTS einingar á önn. Ef nemandi vill taka fleiri námskeið á önn þarf hann að sækja um það til deildarfulltrúa. 

4. Endurtekning prófa

4.1. Ef nemandi stenst ekki endurtektar- eða sjúkrapróf sem hann þreytir ber honum að sitja námskeiðið að nýju áður en hann þreytir aftur próf í því, sjá Almennar náms- og prófareglur HR.
4.2. Nemanda er að hámarki heimilt að þreyta próf í tilteknu námskeiði fjórum sinnum. Ef nemandi sem stenst ekki próf sem hann þreytir í fjórða sinn vill halda áfram námi ber honum að sækja um endurinnritun. Sé honum veitt heimild til þess heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.
4.3. Hafi nemandi staðist próf getur hann óskað eftir að endurtaka prófið. Í þeim tilvikum gildir einkunn úr seinna prófinu.
4.4. Deildarfulltrúi og nemendabókhald hafa eftirlit með rétti nemenda til að endurtaka próf. 

5. Námsáætlun og lokaverkefni

5.1  Nám í tæknifræði er 210 ECTS einingar og miðast skipulag þess við að námsframvinda sé 30 ECTS einingar á önn.  Lokaverkefni í tæknifræði er 24 ECTS einingar.  Á vef tækni- og verkfræðideildar er birt kennsluskrá og yfirlit yfir skipulag námsins.  Á vef tækni- og verkfræðideildar eru einnig birtar samþykktar námsáætlanir fyrir hverja námsbraut og reglur um lokaverkefni.

5.2  Nemendum er bent á mikilvægi þess að kynna sér kröfur um undanfara áður en þeir skrá sig í námskeið.  

6. Námsframvinda

6.1. Til að mega flytjast á annað námsár þarf nemandi að hafa lokið a.m.k. 42 ECTS einingum af námsefni fyrsta námsárs. Ef nemandi sem uppfyllir ekki þetta skilyrði hyggst halda áfram námi ber honum að sækja um endurinnritun. Sé honum veitt heimild til þess heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.
6.2. Nemandi skal hafa lokið öllum námskeiðum fyrsta námsárs eigi síðar en 2 árum eftir að hann innritaðist.  Hafi hann ekki gert það getur hann sótt um endurinnritun ef hann vill halda áfram námi. Sé honum veitt heimild til þess heldur hann einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.
6.3. Til að mega vinna lokaverkefni í tæknifræði þarf nemandi að hafa lokið a.m.k.174 ECTS einingum þ.e. hann má að hámarki taka 12 ECTS einingar samhliða lokaverkefni.
6.4. Nemandi skal ljúka námi sínu innan 5 ára. Ef námi er ekki lokið 5 árum eftir að nemandi innritaðist ber nemanda að sækja um endurinnritun ef hann vill halda áfram námi og tekur ný innritun mið af gildandi námsskrá hverju sinni. Við endurinnritun heldur nemandi einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri.
6.5. Nemandi getur sótt um að gera hlé á námi sínu eða að stunda nám samkvæmt sérstakri áætlun sem víkur frá ofangreindu. Umsóknin, ásamt áætlun um námsframvindu til námsloka, skal send til deildarfulltrúa, studd viðeigandi gögnum. Gildar ástæður fyrir námshléi eða hægferð í námi eru t.d. barnsburður eða veikindi. Námsmatsnefnd metur umsóknir um námshlé, hægferð eða önnur frávik.
6.6. Deildarfulltrúi hefur  eftirlit með námsframvindu nemenda. 

7. Skiptinám

7.1. Nemandi sem vill fá heil misseri í skiptinámi metin að fullu þarf að leggja fram áætlun fyrir skiptinámið til deildarfulltrúa og fá áætlun sína samþykkta áður en skiptinámið hefst.  Skiptinám er skráð á námsferil sem metið (M).
7.2. Vísað er til greinar 2.2 að ofan varðandi mat á einstökum námskeiðum. 

8. Forsetalisti

 8.1  Þeir nemendur í grunnnámi sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga þess kost að komast á forsetalista tækni- og verkfræðideildar og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.  Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur í dagskóla að ljúka einingum sem svara til fulls náms á viðkomandi önn og þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt samþykktri námsáætlun. Samþykkt námsáætlun getur annars vegar verið birt námsáætlun (sjá grein 5.1) og hins vegar eigin námsáætlun nemanda sem námsmatsnefnd hefur samþykkt (sjá grein 6.5).
Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru gjaldgeng á forsetalista. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. sjúkrapróf gilda en endurtektarpróf ekki.

9. Annað

9.1. Nemendur sem ekki hafa íslensku að móðurmáli geta sótt um að skila verkefnum, taka próf o.þ.h. á ensku.
9.2. Undanþágur frá reglum þessum eru aðeins veittar með samþykki námsmatsnefndar. Umsóknir um undanþágur skulu sendar til deildarfulltrúa, studdar viðeigandi gögnum.
 

Gildistaka:

Reglur þessar öðlast þegar gildi. Reglur þessar gilda fyrir nemendur sem innrituðust í Háskólann í Reykjavík 1. júlí 2005 eða síðar.

 

Þannig samþykkt á fundi deildarráðs þann 25. október 2005.

 

Þannig samþykkt, með áorðnum breytingum, á deildarráðsfundi tækni- og verkfræðideildar HR   17. desember 2008.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica