Tæknifræði BSc
Fjölbreytt tækifæri og mikil starfsréttindi að námi loknu
Tækni- og verkfræðideild HR býður 3,5 ára nám í tæknifræði til BSc-gráðu (210 ECTS) í fjórum greinum:
Byggingartæknifræði
Iðnaðartæknifræði
Rafmagnstæknifræði
Vél- og orkutæknifræði
Megináhersla er lögð á að nemendur vinni hagnýt, raunhæf verkefni sem byggja á þekkingu kennara úr atvinnulífinu og eru oft unnin í samstarfi við fyrirtæki, m.a. 24 ECTS eininga lokaverkefni. Langflestir kennaranna hafa mikla starfsreynslu við hönnun, framleiðslu eða framkvæmdir. Nemendur sem stunda nám í tæknifræði eru gjarnan iðnmenntaðir eða hafa verkþekkingu á fagsviðinu og námið byggir ofan á þann grunn.
Námið opnar margþætta atvinnumöguleika, bæði hér á landi og erlendis. Námið byggir á traustum grunni tæknideildar Tækniháskóla Íslands þar sem kennsla í tæknifræði hófst 1964, en Tækniháskóli Íslands sameinaðist Háskólanum í Reykjavík 2005.
Nám til lokaprófs í tæknifræði BSc er 210 ECTS einingar og tekur 3,5 ár. Þessi prófgráða veitir mikil starfsréttindi miðað við lengd námsins, þar sem þeir sem ljúka lokaprófi í tæknifræði hljóta staðfestingu iðnaðarráðuneytisins og full réttindi til að starfa sem tæknifræðingar og nota lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur (enska: certified engineer). Jafnframt eru ótalmargir möguleikar á framhaldsnámi og aðgengilegt að byggja MSc-nám í verkfræði ofan á BSc-próf í tæknifræði, hvort heldur hér á landi eða við erlenda háskóla.
Fyrirkomulag BSc náms í tæknifræði
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Gerðar eru kröfur um að nemendur hafi haldgóða þekkingu á stærðfræði, raungreinum, íslensku og ensku. Æskilegur undirbúningur fyrir nám í tæknifræði er að hafa lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlisfræði. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt. Gerð er krafa um 6 mánaða fagtengda starfsreynslu. Þeir sem ekki hafa starfsreynslu við upphaf náms geta aflað sér hennar með sumarvinnu á námstímanum.
Fylgiskjöl með umsókn í tæknifræði:
Námsferill
Starfsferill, etv. meðmæli
Sveinsbréf eða meistarabréf ef við á
Nánari upplýsingar:
Íris Dögg Kristmundsdóttir, verkefnastjóri í tæknifræði, irisdk@ru.is, s.599 6466

Byggingartæknifræði

