Styrkir fyrir meistaranema

Forsetastyrkir
Tækni- og verkfræðideild býður nýja styrki fyrir meistaranema.  Um er að ræða tvær tegundir af styrkjum:  

  •  Sérstakur forsetastyrkur (Dean‘s selection fellowship) sem nemur niðurfellingu allra skólagjalda í tvö ár. Haustið 2010 verða veittir allt að 5 styrkir.
  •  Forsetastyrkur meistaranáms (Dean‘s selection grant) sem felur í sér niðurfellingu skólagjalda fyrsta misserið í meistaranámi. Haustið 2010 verða veittir allt að 10 styrkir.

Allir þeir sem hljóta þessa styrki njóta forgangs til þátttöku í aðstoðarkennslu í grunnámi TVD á meðan á námi þeirra stendur.

Umsókn um að hefja fullt meistaranám í TVD haustið 2010 er jafnframt umsókn um ofangreinda styrki.

Aðstoðarkennarastyrkir
Tækni- og verkfræðideild býður upp á aðstoðarkennarastyrki fyrir meistaranema. Styrkirnir eru ætlaðir meistaranemum í fullu námi sem ekki hafa fengið annan styrk tengdan meistaranáminu.

Nýnemastyrkir í meistaranámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.

Frekari upplýsingar

Jóhanna Fríða Dalkvist johannafd@ru.is verkefnastjóri meistaranáms

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica