Meistaranám í steinsteyputækni
Námsbrautin steinsteyputækni (Concrete Technology) býður upp á sérhæft nám í efnis- og endingarhönnun steinsteypu.
Helstu markmið námsbrautarinnar eru:
-
Að nemendur öðlist aukinn fræðilegan bakgrunn um uppbyggingu og endingu sementsbundinna efna
-
Að nemendur nái færni með því að leysa raunhæf verkefni og að beita gagnrýnni hugsun við lausn viðfangsefna
-
Alþjóðlegt nám undir leiðsögn prófessora sem eru í fremstu röð á sínu sviði
Uppbygginga náms:
- 2 ár, 120 ECTS (30 ECTS/önn)
- 30-60-90 ECTS námskeið (flest námskeið 3 eða 6 ECTS)
- 30-60-90 ECTS meistaraverkefni
- Nám má stunda sem fullt nám eða dreifa yfir meira en 2 ár (t.d. samhliða starfi)
Dæmi um rannsóknarverkefni:
- Áhrif basalttrefja til styrktar steypu
- Umhverfisvæn steinsteypa
- Af hverju er skrið meira í íslenskri steinsteypu
- Sjálfútleggjandi steinsteypa
- Ofur-sterk steinsteypa (meira er 5 falt sterkari)
- Rýrnun og sprungumyndun
- Áhrif Kyoto sáttmálans á gæði sements
- Alkalívirkni steinsteypu
Námskeið námsbrautarinnar:
- Steinsteypufræði fyrir iðnaðinn
- Ending steinsteypu
- Flotfræði og framleiðsla steypu
- Steinsteypufræði I & II
- Íblöndunarefni fyrir steinsteypu
- Ólínuleg hreyfifræði vökva
- Byggingareðlisfræði
- Rannsóknaaðferðir I & II
- Rannsóknatengd verkefni
- Valnámskeið af öðrum MSc námsbrautum
Lýsingar á efni námskeiða er að finna í kennsluskrá.
Umsækjendur
Umsækjendur skulu hafa lokið BSc prófi í tækni- eða verkfræði af byggingarsviði með góðum árangri. Þeir sem hafa annan bakgrunn úr tækni- eða verkfræði þurfa að sækja viðbótarnámskeið.
Nemendur sem lokið hafa fleiri en 180 ECTS í BSc námi sínu geta sótt um að fá hluta umframeininganna metnar inn í meistaranámið.
Kennslufyrirkomulag
Kennslan er byggð á fyrirlestrum, verkefnavinnu og rannsóknarverkefnum. Námið er 120 ECTS, þar af getur meistaraverkefni verið 30, 60 eða 90 ECTS.
Sjá nánar reglur um meistaranám
Kennarar námsbrautar í steinsteyputækni
Umsjón: Ólafur H. Wallevik olafurw@ru.is
- Próf. Ólafur H. Wallevik, RU
- Próf. J. Walraven, TU-Delft
- Próf. J. Stark, Weimar
- Próf. D. Hooton, Toronto
- Próf. M. Collepardi, Italy
- Próf. H.M. Jennings, NWU
- Próf. K. Khayat, Kanada
- Próf. B. Wigum, Mannvit
- Próf. L-O Nilson, TU Lund
- Dr. J.E. Wallevik, Ísland



