Meistaranám í framkvæmdastjórnun

MSc byggingarverkfræði með sérhæfingu í framkvæmdastjórnun

MSc í framkvæmdastjórnun

Námsbrautin Framkvæmdastjórnun (Construction Management) veitir sérhæfingu til að stýra stórum og flóknum verkefnum á sviði mannvirkjagerðar og bygginga.   

Uppbygging náms í framkvæmdastjórnun

Lýsingar á efni námskeiða er að finna í kennsluskrá.

Helstu markmið námsbrautarinnar eru:

  • Að veita menntun sem er samanburðarhæf við það sem best þekkist erlendis á fagsviðum námsbrautarinnar.
  • Að veita menntun þar sem áhersla er lögð á djúpa, haldgóða þekkingu sem byggir jöfnum höndum á miðlun nýjustu þekkingar og rótgróinna fræða og aðferða.
  • Að leggja áherslu á þverfaglega nálgun og eflingu skilnings á ólíkum sjónarmiðum og þörfum, þar sem sérfræðingar á mismunandi fagsviðum starfa saman að fjölþættum verkefnum.

Framkvaemdastjornun-web

Umsækjendur
Umsækjendur skulu hafa lokið BSc prófi í verkfræði eða tæknifræði með góðum árangri, að öðru jöfnu á byggingarsviði.

Þeir sem hafa annan bakgrunn, t.d. BSc próf í byggingafræði og umhverfisfræði, geta einnig sótt um skólavist. Þeir nemendur útskrifast með meistarapróf í framkvæmdastjórnun (MSc in Construction Management).

Kennslufyrirkomulag
Kennslan er byggð á fyrirlestrum og verkefnavinnu þar sem m.a. er lögð áhersla á samstarfsfærni og þverfaglega nálgun í samvinnu við lagadeild og viðskiptadeild HR sem og fyrirtæki í byggingargeiranum.  Námið er 120 ECTS, þar af getur meistaraverkefni verið 30 eða 60 ECTS.

Sjá nánar Reglur um meistaranám í Tækni- og verkfræðideild.

Umsjónarkennarar námsbrautar í framkvæmdastjórnun:
Brian L. Atkin prófessor og Ingunn Sæmundsdóttir dósent


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica