Fyrirkomulag meistaranáms í verkfræði

  • Námið er 120 ECTS einingar og tekur almennt 4 annir að loknu 180 ECTS eininga BSc prófi. 
  • Fullt nám er 30 ECTS einingar á önn. Flest námskeið eru 6-8 ECTS einingar og taka nemendur í fullu námi yfirleitt 4 námskeið á önn.
  • Náminu lýkur með 30-60 ECTS eininga meistaraverkefni.

Hver nemandi velur sér námsgreinar og gerir einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við umsjónarkennara sinn.  Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.

MSc prófgráður og starfsréttindi
Þeir sem vilja útskrifast með prófgráðu sem uppfyllir kröfur Verkfræðingafélags Íslands um leyfi til að nota lögverndaða starfsheitið verkfræðingur, þ.e. MSc próf í verkfræði, þurfa að hafa lokið tilteknum lágmarksfjölda eininga í undirstöðugreinum og verkfræðigreinum sjá http://www.vfi.is/

Sviðsstjórar hvers sviðs fyrir sig leiðbeina nemendum sem þurfa etv. að bæta við sig námskeiðum í undirstöðugreinum. 

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Fríða Dalkvist johannafd@ru.is

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica