Byggingafræði BSc

Háskólinn í Reykjavík býður upp á nám til BSc gráðu í byggingafræði. Um er að ræða 120 ECTS eininga viðbótarnám að loknu 90 ECTS eininga námi í byggingariðnfræði. Kennt er í fjarnámi með verkefnalotum í staðarnámi.

Byggingafræði er fjölbreytt og hagnýtt nám.  Byggingafræðingar geta öðlast löggildingu til að árita aðaluppdrætti og þar með rekið teiknistofur, starfað sem skipulags- og byggingarfulltrúar hjá sveitarfélögum, starfað sem byggingarstjórar, sem skoðunarmenn mannvirkja og rekið skoðunarstofur.
Byggingafræðingar starfa á teiknistofum sem gæðastjórar, verkefnastjórar eða hönnuðir.  Þeir reka eigin teiknistofur og starfa sem framkvæmdastjórar arkitektastofa eða annarra fyrirtækja í byggingariðnaði.
Margir starfa hjá verktakafyrirtækjum sem verkefnastjórar eða byggingarstjórar. Að auki má nefna tryggingafélög, fasteignafélög, banka, fasteignasölur, fyrirtæki í innflutnings- og smásöluverslun og opinbera aðila s.s. Fasteignamat ríkisins, Fasteignir ríkisins og Íbúðalánasjóð. 

Inntökuskilyrði:
Umsækjendur skulu hafa sveinspróf og lokið 90 ECTS eininga námi í byggingariðnfræði (6 annir).

Fyrirkomulag náms:
1. - 6. önn: Byggingariðnfræði

7. - 11. önn: Bóknám – 15 ECTS einingar á önn (alls 75 ECTS einingar)
Verkefnavinna er um 2/3 af námsvinnunni og fagtengd námskeið um 1/3. Verkefnavinnan byggist að hluta á námsefni fyrri anna og að hluta á nýju efni.

12.önn: Starfsþjálfun og lokaritgerð – 25 ECTS einingar

13.önn: Lokaverkefni – 20 ECTS einingar 

Nánari upplýsingar veita:
Vilborg Hrönn Jónudóttir, verkefnastjóri, vilborg@ru.is  s.599 6255
Jens Arnljótsson, lektor og verkefnastjóri iðnfræðináms  jensarn@ru.is 

Skólagjöld


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica