Iðnfræði og Byggingafræði BSc.

Fjölbreytt diplomanám í fjarkennslu með möguleikum á framhaldsnámi.

Í tækni- og verkfræðideild er boðið upp á iðnfræði, hagnýtt 90 ECTS eininga nám á háskólastigi, með það að markmiði að styrkja stöðu nemenda á vinnumarkaði og gera þá hæfari til að takast á við fleiri og fjölbreyttari störf.

Iðnfræði er eingöngu kennd í fjarnámi með tveimur staðarlotum á önn, ein helgi í senn.   Hægt er að velja um tvær leiðir til að ljúka námi í bygginga-, raf- og véliðnfræði.

  • Leið 1: Ljúka náminu á þremur árum samhliða vinnu. 
  • Leið 2: Vera í fullu námi og ljúka því á einu og hálfu ári. 

Víða á landsbyggðinni geta nemendur fengið aðstöðu til hópvinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í skólanum. 

Réttindi að iðnfræðinámi loknu:

Námið skiptist í þrjú svið: byggingariðnfræði, véliðnfræði og rafiðnfræði. Til að útskrifast sem iðnfræðingur, sem er lögverndað starfsheiti, þarf nemandi að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði og veitir námið þá rétt til meistarabréfs.

Byggingariðnfræðingar fá réttindi til að starfa sem byggingarstjórar. Þeir geta einnig haldið áfram námi í byggingafræði sem er 210 ECTS eininga BSc nám og er iðnfræðin (90 ECTS einingar) metin að fullu inn í það nám.

Þeim sem ljúka byggingar-, vél- eða rafiðnfræði býðst að bæta við sig 30 ECTS eininga námi í rekstrariðnfræði.

Inntökuskilyrði í iðnfræði:

Kröfur um bóklegan undirbúning, umfram bóklegt nám til sveinsprófs eru 12 einingar til viðbótar í tungumálum (ísl, ens, dan) og 12 einingar til viðbótar í raungreinum (stæ, eðl, efn).  Sérstakt hnitmiðað undirbúningsnám er í boði í fjarnámi við HR (stærðfræðigrunnur, raungreinagrunnur og tungumálagrunnur I og II / enska og íslenska) og er það aðgengilegasta leiðin fyrir flesta til að ljúka undirbúningsnámi samhliða iðnfræði. 

Þeir sem hafa lokið meistaranámi í iðngrein eða stúdentsprófi uppfylla kröfur um bóklegan undirbúning og geta hafið nám í iðnfræði án frekari undirbúnings.

Einnig er hægt að taka aðra önn (F2) hjá  FrumgreinaMennt HR, sem telst fullnægjandi undirbúningsnám. 

Skólagjöld

Fylgiskjöl með umsókn í iðnfræði:
Námsferill
Sveinsbréf eða meistarabréf
Starfsferill, etv. meðmæli

Nánari upplýsingar veita: 
Vilborg Hrönn Jónudóttir, verkefnastjóri, vilborg@ru.is , s.599 6255
Jens Arnljótsson, lektor og verkefnastjóri iðnfræðináms jensarn@ru.is


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica