Lögrétta - félag laganema við Háskólann í Reykjavík
Markmið félagsins eru einkum að efla fræðastarf á sviði lögfræði jafnt innan lagadeilarinnar sem utan hennar.
Lögrétta stendur vörð um hagsmunamál félagsmanna og er tengiliður milli nemenda og stjórnenda deildarinnar en formaður Lögréttur situr fyrir hönd laganema deildarfundi lagadeildar og gætir hagsmuna þeirra.
Á vegum Lögréttu starfar málfundafélag Lögréttu sem stendur fyrir málfundum um lagaleg málefni sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Þá gefur félagið út Tímarit Lögréttu sem er ritrýnt fræðátímarit á sviði lögfræði.
Félagið sér laganemum einnig fyrir fjörugu skemmtanalífi í samvinnu við Ríkisráð en fastir liðir í félagslífi laganema eru Lögréttudagurinn og árshátið auk nær vikulegra vísindaferða.
Nánari upplýsingar um félagið, myndir og fleira má finna á heimasíðu þess: www. logretta.is einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið stjorn@logretta.is
Félagið var stofnað 8. mars 2003.
Formaður Lögréttu er: Aldís Geirdal Sverrisdóttir. Netfang: aldis@logretta.is
Netfang félagsins er logretta@logretta.is

