Reglur um Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík
1. gr.
Almennt.
Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík (EHR) er rannsóknar- og fræðslustofnun sem starfrækt er af Háskólanum í Reykjavík (HR).
EHR heyrir undir lagadeild HR og er vettvangur rannsókna- og fræðslu á sviði Evrópuréttar.
2. gr.
Hlutverk.
Hlutverk EHR er einkum:
a. að stuðla að og efla rannsóknir á sviði Evrópuréttar,
b. að efla tengsl rannsókna og kennslu á sviði Evrópuréttar,
c. að veita háskólanemum aðstöðu til rannsókna á sviði Evrópuréttar,
c. að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði Evrópuréttar,
d. að sinna lögfræðilegum þjónustuverkefnum á sviði Evrópuréttar,
e. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í Evrópurétti og annað fræðsluefni um Evrópurétt og Evrópumál,
f. að veita fræðslu og ráðgjöf varðandi Evrópurétt þ.á.m. að gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum um Evrópurétt, g. ráðstefnuhald á sviði Evrópuréttar,
h. safna heimildum á sviði Evrópuréttar, varðveita þær og veita aðgang að þeim til fræðilegrar úrvinnslu.
3. gr.
Aðstaða.
Háskólinn í Reykjavík lætur EHR í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.
4. gr.
Skipulag.
EHR starfar í einni eða fleiri rannsóknarstofum. Starfsmaður eða starfsmenn EHR annast skrifstofuhald hennar að því marki sem ákveðið hefur verið af stjórn hennar en að öðrum kosti annast skrifstofa HR skrifstofuhald stofnunarinnar.
5. gr.
Stjórn og forstaða
Stjórn EHR skal skipuð fimm mönnum kosnum á deildarfundi í lagadeild HR. Þar af skal einn kosinn formaður. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum.[1]
Forseti lagadeildar HR ræður forstöðumann EHR. Forstöðumaðurinn kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar. Hann skal eiga frumkvæði að stefnumótun og þróun.
6. gr.
Stjórnarfundir.
Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti með a.m.k. þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.
Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forstöðumaður EHR óskar þess.
Forstöðumaður EHR skal sitja stjórnarfundi, þótt ekki sé hann stjórnarmaður, og hafa þar umræðu- og tillögurétt.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.
Rita skal fundagerðir stjórnarfunda.
7. gr.
Verkefni stjórnar.
Stjórnin annast stefnumótun fyrir EHR og setur stofnuninni starfsreglur, eftir því sem þurfa þykir. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi EHR.
Stjórnin skal hafa eftirlit með fjárreiðum EHR og gæta þess að starfsemin sé innan þess fjárhagsramma sem ákveðinn hefur verið í staðfestri fjárhagsáætlun lagadeildar HR.
8. gr.
Fjármál.
Tekjur EHR eru eftirfarandi:
a. framlag frá lagadeild,
b. almennir styrkir eða til einstakra verkefna,
c. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
d. tekjur af útgáfustarfsemi,
e. aðrar tekjur, t.d. gjafir og ríkisframlög.
Reikningshald EHR skal vera hluti af reikningshaldi HR. Fjárhagsáætlun EHR skal vera hluti af fjárhagsáætlun lagadeildar HR nema framkvæmdastjórn HR ákveði annað.
9. gr.
Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 5. september 2002
_____________________________________
Þórður S. Gunnarsson
forseti lagadeildar HR
[1] Br. á deildarfundi í LD HR 17. mars 2005

