Grunnnám (BA)
BA í lögfræði 180 ECTS - 3 ár ML í lögfræði 120 ECTS - 2 ár
Andri Gunnarsson - lögmaður hjá Nordik lögfræðiþjónustu
Alþjóðleg uppbygging námsins í HR, sérfróðir kennarar og áhersla á samræðu nemenda og kennara ásamt raunhæfum verkefnum hefur reynst mér gott veganesti út í atvinnulífið. Ég fann strax eftir útskrift að námið hafði veitt mér traustan grunn til að veita íslenskum og erlendum aðilum fjölbreytta ráðgjöf um lögfræðileg málefni. Námið gaf mér einnig aukið sjálfstraust til að sýna frumkvæði og forystu í daglegum störfum mínum. Að velja lagadeild HR reyndist mikið heillaspor.
Á undanförnum árum hafa orðið verulegar breytingar á starfsumhverfi íslenskra lögfræðinga sem kalla á nýjar og markvissar áherslur í laganámi. Við lagadeild Háskólans í Reykjavík er í boði mjög metnaðarfullt og nútímalegt laganám sem miðar að því að útskrifaðir nemendur verði framúrskarandi lögfræðingar sem skipi sér í fremstu röð á sínu sviði. Námið samanstendur af 150 ECTS kjarnanámi og 30 ECTS vali.
FULLNAÐARPRÓF Í LÖGFRÆÐI
Þeir sem ljúka meistaranámi við deildina að undangengnu grunnnámi í lögfræði og a.m.k. 240 ECTS í lögfræðigreinum teljast hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda.
Allir nemendur sem hefja nám við lagadeild HR byrja á 3ja ára (180 ECTS) grunnnámi til BA-gráðu. Kennsla fer að hluta fram í fyrirlestrum og raunhæfum verkefnum en einnig í formi vinnu- og umræðufunda. Að grunnnámi loknu gefst nemendum kostur á tveggja ára (120 ECTS) framhaldsnámi til meistaraprófs í lögfræði, ML.
BREIÐUR FRÆÐILEGUR GRUNDVÖLLUR
Í grunnnáminu er lagður mjög breiður fræðilegur grundvöllur með kennslu í öllum megingreinum lögfræðinnar. Leitast er við að tengja hina fræðilegu umfjöllun raunhæfum viðfangsefnum og verkefnavinna er mikil innan einstakra námskeiða og í sérstökum verkefnanámskeiðum.
RAUNHÆF VERKEFNI
Vorið 2008 útskrifaðist ég úr meistaranámi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í dag starfa ég sem saksóknarfulltrúi hjá embætti sérstaks saksóknara. Laganámið nýtist mér sem góður grunnur og undirbúningur undir hvers konar lögfræðileg viðfangsefni. Jafnframt tel ég að álag og skipulagning við verkefnaskil í gegnum allt námið hafi þjálfað vinnubrögð sem nýtast mér mjög vel í starfi og gera mig betur undir það búin að vinna í krefjandi umhverfi.
Hulda Hákonardóttir ML í lögfræði, útskrifuð vorið 2008
Strax á 1. ári taka laganemar þátt í nýsköpunarnámskeiði sem heitir Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Námskeiðið er einnig skyldunámskeið hjá nemendum í viðskiptafræði og verkfræði og valnámskeið í öðrum deildum skólans. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að stofna fyrirtæki á grundvelli viðskiptahugmynda og viðskiptaáætlana sem þeir hafa sjálfir tekið þátt í að móta.
Á vorönn á 2. ári er námskeið sem miðar að því að þjálfa nemendur í skjalagerð, ræðumennsku og málflutningi. Á námskeiðinu eru fluttir fyrirlestrar um gerð stefnu og greinargerðar og reyndir lögmenn fræða nemendur um málflutning fyrir dómi. Nemendur byggja síðan upp dómsmál frá grunni með gerð stefnu og greinargerðar og námskeiðinu lýkur með munnlegum málflutningi í dómsal.
Á vorönn á 3ja ári er nemendum gefir kostur á aukinni sérhæfingu innan lögfræðinnar í gegnum fjölda valnámskeiða. Ennfremur gefst þeim kostur á að velja námskeið á öðrum sviðum innan annarra háskóladeilda hér á landi eða erlendis (samtals allt að 30 ECTS).
NÁM VIÐ AÐRA HÁSKÓLA:
Heimilt er að fengnu samþykki lagadeildar að ljúka einingum við aðra innlenda háskóla eða erlenda háskóla. Gefst þeim kostur á að velja námskeið úr öðrum sviðum innan annarra háskóladeilda hér á landi eða erlendis.
KOSTNAÐUR
Skólagjöld fyrir skólaárið 2010-2011 eru 154 þúsund krónur á önn. Með skólagjöldum getur HR boðið nemendum framúrskarandi aðstöðu og aukið gæði skólastarfsins í heild. Nám við Lagadeild Háskólans í Reykjavík er námshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
ÖFLUGAR RANNSÓKNIR
Markmið lagadeildar HR er að efla rannsóknir á sviði lögvísinda. Til að svo megi verða þarf deildin að skapa kennurum og nemendum fyrsta flokks aðstöðu til rannsóknarvinnu m.a. á vettvangi þeirra rannsóknarstofnana sem starfa á vegum deildarinnar.
STOFNANIR OG MIÐSTÖÐVAR
Á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík eru starfandi fjórar stofnanir og ein upplýsingamiðstöð
- Evrópuréttarstofnun HR, rannsóknarstofnun á sviði Evrópuréttar tók til starfa haustið 2002 og á vegum EHR tók til starfa Miðstöð Evrópuupplýsinga sumarið 2003.
- Á 5 ára afmæli Háskólans í Reykjavík, 4. september 2003 var Auðlindaréttarstofnun, formlega stofnuð
- Fjármálaréttarstofnun var stofnuð þann 29. mars 2004
- Miðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja var sett á fót 9. maí 2008.
Nemendum í meistaranámi gefst kostur á að starfa við þessar stofnanir í tengslum við meistaraverkefni og nemendum í grunnnámi að sérstökum verkefnum.